Landsnet segir, að vegna spennusetningar og prófana á rafbúnaði í Fljótsdalsstöð og hjá Fjarðaáli megi búast við tíðari spennubreytingum á Austurlandi en venja er á meðan prófunum stendur. Notendur geta orðið varir við spennubreytingarnar, t.d. sem blikk í ljósum.
Landsnet segir að þetta eigi hvorki að valda tjóni á búnaði né straumleysi. Ástandið sé tímabundið þar til rekstur Fljótsdalsstöðvar og Fjarðaáls hefjist.