Í könnun, sem gerð hefur verið á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, kemur fram að fyrirsjáanlegt sé að skortur á hjúkrunarfræðingum muni aukast fram til ársins 2015 um 12,8 stöðugildi árlega. Það ár muni að óbreyttu vanta 749 hjúkrunarfræðinga til starfa í alls 543 stöðugildi.
Hjúkrunarfræðingar á vinnualdri á Íslandi eru alls 3102. Af þeim starfa 2689 á íslenskum stofnunum samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Könnun þessi nær yfir þá hjúkrunarfræðinga.
Í skýrslunni segir, að alls vanti 582 hjúkrunarfræðinga til að leysa úr skorti á hjúkrunarfræðingum til starfa í 445 stöðugildi á íslenskum stofnunum. Hjúkrunarforstjórar meta þörf fyrir árlega fjölgun stöðugilda stéttarinnar vera 2,2% og fjölgun námsplássa í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri í samtals 153 nægi ekki til að mæta þessum vexti.
Að teknu tilliti til þeirra sem fara á lífeyri, atvinnuþátttöku og meðalstarfshlutfalls hjúkrunarfræðinga muni árleg nýliðun í stéttinni einungis nema 40 stöðugildum að jafnaði. Áætluð árleg þörf fyrir vöxt stéttarinnar sé hins vegar metin 47,6 stöðugildi.