Ökumaður, sem lögreglan á Selfossi hafði afskipti af vegna ölvunaraksturs í gærkvöldi, var farinn að aka á nú um klukkustund eftir að hann fór af lögreglustöðinni. Lögreglan hafði aftur afskipti af honum og tók frá honum blóðsýni eins og í fyrra skiptið enda um sitt hvort tilvikið að ræða.
Selfosslögreglan kærði í síðustu viku fimmtíu ökumenn fyrir hraðakstur. Einn var kærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þá hafði lögregla afskipti af átta ökumönnum vegna ölvunaraksturs.