Ráðist á unglingspilt í strætóskýli

Ráðist var á unglingspilt og vinkonu hans við strætóskýli í Breiðholti um klukkan tvö síðdegis í dag. Þrír piltar komu að skýlinu á bifreið og réðust á unglinginn. Hann var fluttur á slysadeild en mun ekki hafa verið alvarlega slasaður.

Að sögn lögreglunnar var aðdragandi árásarinnar sá að piltarnir komu á bíl og stöðvuðu hann þar sem pilturinn beið eftir vagninum. Fóru þeir út úr bílnum og réðust skyndilega á piltinn. Lögreglan náði piltunum og viðurkenndu þeir árásina en ekki kom fram hvað þeim gekk til með henni. Sá sem barinn var þekkti ekki piltana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert