ÞSSÍ og ríkisstjórn Níkaragva gera með sér samstarfssamninga

Gísli Pálsson skrifar fyrir hönd Íslendinga undir samninga við stjórnvöld …
Gísli Pálsson skrifar fyrir hönd Íslendinga undir samninga við stjórnvöld í Níkaragva um þróunarsamvinnu landanna. mbl.is

Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Níkaragva hafa ritað undir samstarfssamninga við Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Gísli Pálsson, umdæmisstjóri ÞSSÍ í Níkaragva, skrifaði undir samstarfssamningana fyrir hönd Íslendinga. Undirritunin vakti umtalsverða athygli fjölmiðla þar í landi og fjallað var um samstarfið við Íslendinga á öllum helstu sjónvarsstöðvum landsins.

Maritza Cuan heilbrigðisráðherra undirritaði yfirlýsingu um samstarf á sviði heilbrigðismála, Miguel de Castilla menntamálaráðherra yfirlýsingu um samstarf á svið menntamála og Samuel Santos utanríkisráðherra yfirlýsingu um samvinnu á Atlantshafsströnd Níkaragva.

Atlantshafsströndin er fátækasti hluti landsins og hefur ríkisstjórnin, sem tók við völdum í janúar, lagt áherslu á þróun á þeim svæðum í öllum málaflokkum, að því er segir í fréttatilkynningu vegna þessa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert