Páskahelgin fer vel af stað, hvað lögregluna varðar a.m.k., því hún hefur lítil afskipti þurft að hafa af fólki við skemmtanir og hefur umferð öll gengið vel. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu munar þar um að helgin er löng og hefur dreifst vel yfir undanfarna þrjá daga. Tilkynnt hefur verið um fjögur innbrot undanfarna tvo sólarhringa, en er að sögn lögreglu ekki meira en gengur og gerist.