Greiðlega gekk að ráða niðurlögum elds í fjölbýlishúsi við Kríuhóla í Breiðholti í Reykjavík síðdegis í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Slökkviliðið var kallað út laust eftir klukkan 15, og um hálf fjögur var slökkvistarfi lokið og unnið við reykræstingu.