Að sögn lögreglunnar á Selfossi varð árekstur á móts við Hveragerði á fjórða tímanum í dag. Um aftanákeyrslu er að ræða og engin alvarleg slys urðu á fólki. Annar ökumannanna kenndi sér þó eymsla í baki og sagðist sjálfur ætla að leita sér læknisaðstoðar. Ekki reyndist nauðsynlegt að draga bílana brott.