Hafborg komin til hafnar í Sandgerði

Hafborg KE kom til Sandgerðis á níunda tímanum í kvöld.
Hafborg KE kom til Sandgerðis á níunda tímanum í kvöld. mbl.is/Hilmar Bragi

Hafborg KE-12, sem varð vélarvana utan við Sandgerðishöfn undir kvöld er komin til hafnar í Sandgerði en Vörður, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, dró skipið þangað.

Skipstjórinn á Hafborgu kallaði á aðstoð á neyðarrás 16 um klukkan 18 og óskaði eftir aðstoð til að koma bátnum í land en hann var þá vélarvana rétt fyrir utan Sandgerði. Varðstjórar í vaktstöð siglinga kölluðu þegar út björgunarsveitina í Sandgerði og létu nærstadda báta vita. Auk þess var varðskip Landhelgisgæslunnar, sem statt var í grenndinni, látið vita. Vindur stóð á land þannig að þörf var á skjótri aðstoð.

Tveir bátar sem voru í grennd sigldu þegar í átt til Hafborgar og björgunarskipið Vörður í Sandgerði var sent til hjálpar. Skömmu síðar, eða um kl. 18:30, kom báturinn Maggi Jóns og einnig báturinn Jóhanna að Hafborgu og tók Maggi Jóns Hafborgu í tog. Þegar björgunarskipið Vörður kom að bátunum tók hann við Hafborgu og kom með hana til hafnar í Sandgerði kl. 20:10.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert