Jeppi og fólksbíll rákust saman

Tvennt slasaðist í árekstri skammt frá Beitistöðum í Leirár- og Melasveit um klukkan hálf átta í dag. Lögreglan í Borgarnesi sagði að tvennt hefði verið í jeppa og fjórir útlendingar í fólksbíl sem hefðu lent í árekstri við hægan framúrakstur. Ökumaður fólksbifreiðarinnar og farþegi í framsæti hennar slösuðust og voru fluttir á Slysadeild Sjúkrahússins á Akranesi. Óljóst er hversu alvarleg meiðsl þeirra eru. Aðrir sluppu ómeiddir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert