Fangaverðir á Litla-Hrauni urðu á föstudag varir við að búið var að klippa á girðingar, ytri og innri, sem umlykur fangelsislóðina. Segir lögreglan á Selfossi, að margt bendi til þess, að verkið hafi verið unnið utanfrá.
Götin á girðingunni voru það stór, að auðvelt hefði verið fyrir mann að fara inn eða út. Lögreglan segir, að grunur leiki á, að þetta hafi verið gert til að koma fíkniefnum inn í fangelsið. Málið er í rannsókn.