Tekin með rúmt kíló af meintu kókaíni við komu til landsins

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Árni Sæberg

Hollenskt par hefur verið úrskurðað í gæsluvarðhald til 27. apríl, en fólkið var tekið með rúmt kíló af meintu kókaíni í fórum sínum er það kom með flugi til Íslands á föstudagskvöldið, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Fólkið var að koma frá Amsterdam og bar efnið bæði innvortis og útvortis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert