Viðgerðarskipið CS Pacific Guardian lagði af stað frá Bermudafyrir nokkrum dögum áleiðis á staðinn þar sem CANTAT-3 sæstrengurinn bilaði suðvestur af Íslandi, en strengurinn hefur verið bilaður þar síðan 16. desember s.l.
Áætlað er að skipið verði komið á bilunarstað 11. apríl og að viðgerðin sjálf taki 5-7 daga. Búast við nokkurra klukkutíma rofi á umferð áður en viðgerð hefst og þegar henni verður lokið, en að öðru leyti ætti viðgerðin ekki að hafa mikil áhrif á umferð um CANTAT-3 til Evrópu.