Útboð á tvöföldun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar

Undirbúningur er hafinn að tvöföldun Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar.
Undirbúningur er hafinn að tvöföldun Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar. mbl.is/Ómar

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hefur falið Vegagerðinni að hefja undirbúning að útboði á tvöföldun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar út frá Reykjavík. Verður skipuð verkefnisstjórn til að vinna frumáætlun um fjármögnun og rekstrarfyrirkomulag og undirbúa samráð við viðkomandi sveitarfélög.

Samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneyti er gert ráð fyrir sérstakri fjáröflun vegna verksins í samræmi við þingsályktun um samgönguáætlun 2007 til 2010 en þar er þó ekki tekin afstaða til þess hvernig verkið skuli greitt. Segir ráðuneytið, að nokkrar leiðir komi til greina, svo sem einkaframkvæmd sem byggist á notendagjöldum, ríkisframlagi eða framlagi einkaaðila en einnig geti verið um að ræða hefðbundna fjáröflun sem væri ríkisframlag eða lántaka.

Í bréfi samgönguráðherra til vegamálastjóra er óskað eftir að verkefnisstjórnin hefji viðræður við sveitarfélög á viðkomandi svæðum um skipulagsmál vegna legu veganna og tenginga við nærliggjandi byggðir. Óskað er eftir því að verkefnisstjórnin hraði störfum sínum eins og kostur er en hún verður skipuð fulltrúum Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert