Frönsku kartöflurnar brunnu

Tilkynnt var um reyk sem barst frá íbúð fullorðinnar konu í Hlíðahverfi í Reykjavík í gærkvöldi. Þegar að var komið var konan hvergi sjáanleg en hún mun hafa brugðið sér frá. Reykurinn kom frá potti á eldavél. Íbúðin var reykræst.

Skömmu síðar var tilkynnt um reyk sem barst frá íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði. Þar hafði húsráðandi skroppið frá en á meðan brunnu við franskar kartöflur sem voru í eldföstu móti í ofni. Skemmdir voru litlar sem engar, að sögn lögreglunnar.

Um svipað leyti kviknaði í rafmagnstöflu í einbýlishúsi í miðborginni en þar fór líka betur en á horfðist. Og skömmu fyrir miðnætti var tilkynnt um eld í bíl í vesturhluta borgarinnar. Tjónið er talsvert en eldsupptök er ókunn.

Tuttugu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Óhöppin voru nær öll minniháttar en í einu tilviki kvartaði ökumaður undan eymslum í hálsi. Sá ætlaði sjálfur að leita sér læknisaðstoðar.

Lítið bar á hraðakstri en tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur. Um eittleytið í nótt var fertugur karlmaður stöðvaður fyrir þær sakir í austurborginni og ekki löngu síðar var 21 árs kona tekin í Kópavogi. Hún var sömuleiðis búin að neyta áfengis en bíll hennar mældist á 109 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 50.

Þá stöðvuðu lögreglumenn för karlmanns á sextugsaldri í gær en sá ók bíl þrátt fyrir að vera nýbúinn að missa bílprófið. Fyrir brotið í gær á maðurinn yfir höfði sér 60 þúsund króna sekt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert