Stefnir í aflabrest í lundaveiði þriðja árið í röð

Léleg lundaveiði veldur lundaveiðimönnum í Eyjum áhyggjum.
Léleg lundaveiði veldur lundaveiðimönnum í Eyjum áhyggjum.

Svo gæti farið að verulega dragi úr lundaveiði í Vestmannaeyjum árið 2009 en ef fram heldur sem horfir mun ungfugl, sem er um 87% af veiðiaflans, algjörlega vanta. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnu um lundastofninn sem haldin var í Vestmannaeyjum í gær.

Það voru bjargveiðimenn í Vestmannaeyjum sem óskuðu eftir því að kallað yrði til fundarhalda vegna slakrar afkomu lundastofnsins í Vestmannaeyjum. Víða var komið við á fundinum en fundarmenn voru almennt sammála um að frekari rannsókna er þörf.

Meðal annars má sjá að stór skörð eru höggin í lundastofninn í fjölda lundapysja en árið 2003 voru fyrst skráðar mælingar barna sem bjarga pysjum í Vestmannaeyjum. Þá voru mældir rúmlega 1500 fuglar en þremur árum síðar, aðeins 91. Auk þess sýna mælingar að pysjurnar eru talsvert léttari.

Páll Marvin Jónsson, forstöðurmaður háskólasetursins í Eyjum sagði ennfremur að vandi lundans liggi í fæðuöflun þar sem fæðuuppistaðan, sandsíli væri ekki lengur til staðar við Vestmannaeyjar. Það leiddi svo af sér að árgangar lundans væru mun minni en áður.

Veiðin minnkar sjálfkrafa
Uppistaða í lundaveiði er tveggja til fjögurra ára fugl. Síðustu tvö ár hefur orðið brestur á nýliðun í lundastofninum og allt bendir nú til þess að aflabrestur verði þriðja árið í röð. Þetta leiðir það af sér að ungfugl komi til með að vanta í lundastofninn en uppistaðan í veiði lundaveiðimanna er tveggja til fjögurra ára fugl. Þetta kom fram í máli Erps Snæs Hansen, doktors í líffræði en hann benti á að sandsílastofninn hafi ekki jafnað sig eftir hrun síðustu tveggja ára.

„Ég veit að veiðifélögin og veiðimenn í Eyjum eru mjög meðvitaðir um ástandið og haga sókn sinni eftir því. Þegar gæftir minnka þá minnkar veiðin að sama skapi og menn eru ekki að sækja meira þegar illa veiðist,” sagði Erpur þegar hann var spurður út í það hvort grípa þyrfti inn í lundaveiðar í sumar. Hann bætti því svo við að vissulega hafi komið sveiflur í afkomu lundans en það sé áhyggjuefni þegar það gerist þrjú ár í röð.

Suðurland.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert