Byggðaráð Norðurþings samþykkti á fundi í gær fyrirliggjandi drög að samkomulagi við Fjarðaflug ehf. um að taka að sér rekstur flugstöðvarinnar á Húsavíkurflugvelli og hefja flug til Húsavíkur. Var bæjarstjóra falið að undirrita samkomulag við Fjarðaflug.
Fjarðaflug ehf. er nýtt á flugmarkaðnum en félagið fékk flugrekstrarleyfi í lok síðasta árs og hefur síðan þá verið í leiguflugi. Steindór Jónsson, flugrekstarstjóri hjá Fjarðaflug, sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins, að málið væri enn á undirbúningsstigi og viðræður stæðu yfir við flugmálayfirvöld og bæjarstjórn. Verið væri að skoða ýmsa möguleika í stöðunni.