Slökkviliðinu barst tilkynning á öðrum tímanum í nótt um að reykjarlykt kæmi frá Þjóðleikhúsinu. Allt tiltækt slökkvilið sent á staðinn. Í ljós kom að viðarskilti, sem er fyrir utan húsið, var byrjað að sviðna þar sem það var of nálægt ljóskastara. Töluverð reykjarlykt var á staðnum en slökkviliðinu gekk greiðlega að ná tökum á ástandinu.