Enginn var með allar lottótölur réttar í kvöld og verður fyrsti vinningur, sem nam rúmum 5 milljónum króna, því tvöfaldur næst. Einn var með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fær hann rúmar 165 þúsund krónur. Lottótölurnar voru 10, 13, 22, 27 og 29 og bónustalan var 8. Jókertölurnar voru 1 - 6 - 5 - 9 - 8.