Hval rak á land austur af Þorlákshöfn

Hval hefur rekið á land um 2-3 km austur af Þorlákshöfn. Að sögn sjónarvotta er mjög sterk lykt af hræinu og hefur það því greinilega legið þarna í einhvern tíma. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um hvalrekann í dag og hefur tilkynnt hann til Hafrannsóknastofnunar. Ekki er ljóst hvaða hvalategund um er að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert