Hvatt er til þess, í ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um samgöngumál, að Reykjavíkurflugvöllur gegni áfram lykilhlutverki sem miðstöð innanlandsflugs. Uppbygging heilbrigðisþjónustu, opinberrar stjórnsýslu og helstu menntastofnana landsins sé í Reykjavík og því eðlilegt að landsmenn allir hafi eins greiðan aðgang að þeirri þjónustu og kostur er.
Í upphaflegum ályktunardrögum var málsgrein þar sem sagði, að endurbyggður Reykjavíkurflugvöllur og samgöngumiðstöð styrki einnig miðborg Reykjavíkur með auknu millilandaflugi einkaþotna og smærri flugvéla. Þessi málsgrein var tekin út í vinnu starfshóps og er ekki í endanlegri ályktun.
Talsverðar umræður urðu um málið. Halldór Jónsson hvatti m.a. til þess að flugvöllurinn yrði áfram á núverandi stað. Sagðist hann ekki telja Hólmsheiði heppilegt flugvallarsvæði og lagði þess í stað til, að þar yrði byggt upp háskólasvæði fyrir Háskólann í Reykjavík.
Aðrir fögnuðu niðurstöðu óbirtrar skýrslu, sem verið hefur í fréttum undanfarið, að flugvöllur á Hólmsheiði sé heppilegasti kosturinn.
Ýmsir urðu til að benda á, að í ályktuninni væri ekki talað nákvæmlega um hvar í Reykjavík flugvöllurinn skuli vera og hún bindi því ekki hendur flokksforustunnar og frambjóðenda.
Kaflinn um flugmál í samgönguályktuninni er eftirfarandi:
Landsfundur hvetur til áframhaldandi uppbyggingar á aðstöðu fyrir millilandaflug á Keflavíkurflugvelli og að hraðað verði uppbyggingu á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli enda er öflugt millilandaflug styrkleiki fyrir stöðu Íslands í alþjóðavæðingunni. Þá skal einnig horft til þess að rýmka heimildir stærri flugvalla til að taka á móti loftförum erlendis frá. Tekið er undir áform um að færa rekstur Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar frá utanríkisráðuneyti til samgönguráðuneytis. Lögð er áhersla á að bæta enn frekar rekstrarumhverfi íslenskra flugfélaga þannig að þau geti áfram dafnað í alþjóðlegri samkeppni.