Aðalfundur Flugstoða ohf. var haldinn í dag og gerði Ólafur Sveinsson, formaður stjórnar, grein fyrir helstu störfum stjórnarinnar frá því félagið var stofnað 6. júlí 2006. Þá var stjórn Flugstoða ohf. endurkjörin.
Flugstoðir ohf. tóku við rekstri flugvalla og flugleiðsögu í íslenska flugstjórnarsvæðinu um síðustu áramót eftir lagabreytingu sem fól í sér breytt skipulag á stjórn flugmála landsmanna. Fram kom í skýrslu formanns að stjórnin hefði haldið 9 fundi á starfsárinu sem snerust einkum um undirbúning að starfrækslu félagsins. Þá sagði hann að framundan væri að undirbúa byggingu samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll sem samgönguráðherra hefur falið félaginu að annast.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra þakkaði stjórn og starfsmönnum Flugstoða ohf. fyrir vel unnin störf við undirbúning og fyrstu skrefin í starfseminni. Verkefni Flugstoða væru mikilvæg þjónusta við íslenskt flug og kvaðst hann sannfærður um að það hefðu verið rétt skref af sinni hálfu að hafa forgöngu um þessar breytingar.
Stjórn Flugstoða ohf.er skipuð eftirfarandi einstaklingum: Ólafur Sveinsson formaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Gunnar Finnsson, Hilmar Baldursson og Sæunn Stefánsdóttir. Forstjóri Flugstoða ofh. er Þorgeir Pálsson.