Jeppi ónýtur eftir veltu

Nýlegur jeppi valt á Suðurlandsvegi við Eyjarhóla hjá Pétursey í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli lenti bíllinn út í vegkanti og ökumaðurinn missti stjórn á honum.

Lögreglan segir, að fólk í bílnum hafi sloppið ómeitt og það sé bílbeltum að þakka. Bíllinn er hins vegar talinn vera ónýtur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert