Dekk fór undan tengivagni olíuflutningabíls

Unnið er að því að dæla olíu út tengivagni olíuflutningabíls eftir að dekk fór undan tengivagninum á Reykjanesbraut til móts við Bónus-verslunina í Njarðvík. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum átti umferðaróhappið sér stað á áttunda tímanum í kvöld. Engan sakaði í óhappinu að sögn lögreglu endaði dekk flutningabílsins uppi á þaki Bónus-verslunarinnar. Lögreglumenn eru á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert