Þótt sumardagurinn fyrsti sé liðinn þá er líklega nokkuð í stuttbuxnaveðrið. Hvítt var yfir Akureyri í morgun og er enn. Félagarnir Almar og Bergsteinn létu það ekki á sig fá og voru úti í garði að búa til snjókarl þegar ljósmyndara bar að garði. Óvíst hlýtur þó að teljast hvort Snæfinnur þessi verði langlífur.