Karlmaður stunginn í handlegg

Karlmaður á þrítugsaldri var stunginn í handlegg með eldhúshníf um klukkan hálf eitt í dag. Maðurinn hafði deilt við annan mann sem barði hann með stól auk þess að stinga hann. Áverkarnir eru ekki alvarlegir, en sá særði var fluttur á slysadeild á Selfossi þar sem gert var að sárum hans.

Lögregla gerði svo leit að gerandanum, en hann fannst nú síðdegis. Verið er að yfirheyra hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert