Víða hálka á heiðum

Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði.
Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. mbl.is/Rax

Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og snjóþekja víða á Snæfellsnesi. Hálka og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og hálkublettir á heiðum á Vestfjörðum, ófært er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Á Norður-og Norðausturlandi er víða snjóþekja,hálka og éljagangur. Hellisheiði-eystri er ófær. Greiðfært er um Suðurland og Austfirði.

Vegna aurbleytu og hættu á vegaskemmdum er allur akstur bannaður á flestöllum hálendisvegum sem að jafnaði eru ekki færir nema að sumarlagi. Þó er fært inn í Þórsmörk. Þeir sem vilja komast með bíla eða vélsleða á snjó er bent á að hægt er að fara frá Húsafelli upp á Langjökul og einnig er hægt að komast upp á Mýrdalsjökul um Sólheimaheiði.

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir víða um land og eru flutningsaðilar beðnir um að kynna sér það nánar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert