Ófært er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar, Lágheiði og Hellisheiði-eystri. Annars eru allir helstu þjóðvegir landsins færir, en hálka er á heiðum á Vestfjörðum og hálkublettir víða á Norðausturlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vegna aurbleytu og hættu á vegaskemmdum er allur akstur bannaður á flestöllum hálendisvegum sem að jafnaði eru ekki færir nema að sumarlagi. Þó er fært inn í Þórsmörk. Þeir sem vilja komast með bíla eða vélsleða á snjó er bent á að hægt er að fara frá Húsafelli upp á Langjökul og einnig er hægt að komast upp á Mýrdalsjökul um Sólheimaheiði.
Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir víða um land og eru flutningsaðilar beðnir um að kynna sér það nánar.