Bílþjófur eltur uppi og handtekinn í Ölfusi

Lögreglan á Selfossi handtók í morgun mann á fertugsaldri eftir eltingaleik sem endaði með því að maðurinn ók stolinni sendibifreið inn að sandgryfjum vestan Óseyrarbrúar þar sem hann var króaður af. Hann reyndi að forða sér á hlaupum en átti þung spor í lausum sandinum og með fráa lögreglumenn á hælum sér gafst hann upp.

Þetta kemur fram á Lögregluvefnum.

Eftirför lögreglunnar hófst á Krísuvíkurvegi í Selvogi. Ástæða eftirfararinnar var sú að lögregla var að svipast um eftir sendiferðabifreið sem hafði verið stolið í Keflavík í nótt. Í Selvogi vildi svo til að lögreglumenn mættu bifreiðinni og gáfu ökumanni hennar stöðvunarmerki sem hann sinnti ekki. Ökumaður sendibifreiðarinnar ók hratt og ógætilega þar á meðal í gengum bæjarhlaðið á Hrauni í Ölfusi.

Félagi mannsins var á annarri bifreið og kom skömmu síðar í lögreglustöðina og var handtekinn þar. Í bifreið hans fannst biblía og sálmabók merkt Krísuvíkurkirkju. Sá maður hafði komið við í Krísuvíkurkirkju og tekið bækurnar þar.

Sendibifreiðin var full af glugga- og hurðakörmum og leikur grunur á að félagarnir hafi stolið því í Keflavík. Það mál er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Ökumaður sendibifreiðarinnar var sviptur ökurétti til bráðabirgða vegna háskaaksturs og meintra fíkniefnaáhrifa við aksturinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert