Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að veita SAMAN hópnum Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra. Verðlaunin voru afhent í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun.
Auglýst var eftir tilnefningum til verðlaunanna og bárust á milli 40 og 50 tilnefningar frá fyrirtækjum, einstaklingum og stofnunum. Nefnd á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis var ráðherra til aðstoðar við mat á tilnefningum.
SAMAN hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana sem láta sig varða velferð barna. Markmið hópsins er að styðja og styrkja foreldra, einkum í tengslum við tímabil eða sérstaka atburði þegar talið er líklegt að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna.
SAMAN hópurinn varð til um áramótin 1999 – 2000 og hefur starfað óslitið síðan. Hópurinn hefur staðið að gerð og útgáfu auglýsinga, fræðslu- og kynningarefnis til dæmis þegar 10. bekkingar útskrifast úr grunnskóla, á haustin þegar útivistatími barna styttist, á 17. júní og um verslunarmannahelgina.
Aðilar að SAMAN hópnum eru: Akureyrarbær, Seltjarnarnesbær, Garðabær, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Mosfellsbær, Sveitarfélagið Álftaness, Kópavogur, Barnaheill, Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Heilsugæslan í Reykjavík, Heimili og skóli, IOGT, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Ný leið ráðgjöf, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjórinn, SAMFOK, Umboðsmaður barna, Vímulaus æska, Þjóðkirkjan og loks Lýðheilsustöð.
Handhafi Íslensku lýðheilsuverðlaunanna fær annars vegar veglegan verðlaunagrip, styttu úr gleri á grágrýtisstöpli eftir Ólöfu Davíðsdóttur í Brákarey, en hins vegar 500 þúsund króna fjárupphæð.