Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti en talið er að efnin séu hass, amfetamín og maríjúana. Mest var af hassi eða um 100 grömm. Karlmaður og kona voru handtekin og yfirheyrð vegna málsins.

Þá var hálffertug kona í annarlegu ástandi handtekin í miðborginni um hádegi í gær en í fórum hennar fundust ætluð fíkniefni. Konan var stöðvuð við akstur en þá hafði hún ekið á móti umferð. Skráningarnúmer voru fjarlægð af bílnum sem var með bilaðar bremsur.

Í Kópavogi voru tveir piltar um tvítugt færðir á lögreglustöð í nótt en í bíl annars þeirra fundust ætluð fíkniefni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert