Viðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum lokið

Áhöfn kapalskipsins Pacific Guardian hefur lokið fullnaðarviðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum sem bilaði milli Íslands og Kanada 16. desember s.l. Í janúar s.l. var reynt að gera við strenginn en viðgerðarskip varð þá frá að hverfa vegna veðurs.

Í tilkynningu segir, að unnið sé að því að setja fjarskiptaumferð á strenginn að nýju og búist við að umferð verði komin í eðlilegt horf fyrir lok vikunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert