Lögreglunni á Selfossi barst skömmu eftir klukkan 17 í dag tilkynning um að maður á sextugsaldri lægi í blóði sínu í húsi í Hveragerði.
Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru þegar á vettvang. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík og er þungt haldinn.
Lögreglan á Selfossi vinnur að rannsókn málsins með aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem rannsakar vettvang. Beðið er upplýsinga lækna um eðli áverka á mannsins.