Árekstur varð fyrir skömmu á Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Tveir bílar eru utan vegar. Lögreglan og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins eru komin á slysstað. Annar bíllinn er upphækkaður jeppi sem er á hliðinni. Umferð gengur nú eðlilega framhjá slysstað. Að sögn Slökkviliðsins fór betur en á horfðist og ekki þurfti að flytja neinn á sjúkrahús.