2 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 60 daga fangelsi fyrir líkamsmeiðingu af gáleysi, ölvunarakstur, hraðaakstursbrot og önnur umferðarlagabrot. Þá var maðurinn sviptur ökuréttindum ævilangt.

Maðurinn var m.a. fundinn sekur um að hafa ekið bíl yfir gatnamót í Reykjavík gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að hann lenti í árekstri við annan bíl. Ökumaður hins bílsins ristarbrotnaði og farþegi í bíl þess sem slysinu olli hlaut minni háttar áverka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert