Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan tólf á hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs og Tryggvi Jónsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri eru kærðir fyrir bókhaldsbrot, fjárdrátt og brot á lögum um ársreikninga. Jón Gerald Sullenberger er hins vegar kærður fyrir að hafa gefið út tilhæfulausa reikninga í viðskiptum sínum við Baug.