Nýliðinn aprílmánuður var með þeim hlýjustu sem sögur fara af hér á landi frá því samfelldar mælingar hófust á ofanverðri 19. öld. Úrkoma var einnig mikil í apríl og hefur t.d. ekki verið meiri á Akureyri frá árinu 1989. Þar voru sólskinsstundir þó yfir meðallagi.
Veðurstofan segir í veðurfarsyfirliti, að tíðarfar hafi almennt verið hagstætt í mánuðinum en hans verði einkum minnst fyrir tvær óvenjulegar hitabylgjur. Sú fyrri varð um landið austanvert í byrjun mánaðarins og komst hiti þann 3. í 21,2 stig í Neskaupstað. Hiti hefur ekki mælst hærri svo snemma árs.
Síðari hitabylgjan gekk yfir mikinn hluta landsins síðustu daga mánaðarins. Landshitamet aprílmánaðar féll þann 29. þegar hiti komst í 23°C á sjálfvirku stöðinni í Ásbyrgi í Öxarfirði og í 21,9°C á mönnuðu stöðinni á Staðarhóli í Aðaldal. Hvoru tveggja er met í sínum stöðvaflokki. Áður hafði hiti á sjálfvirkri stöð orðið hæstur á Hallormsstað 21,4°C þann 19. apríl 2003, en á mannaðri stöð 21,1°C á Sauðanesi við Þistilfjörð 18. apríl 2003.
Hitamet féllu mjög víða á einstökum veðurstöðvum. Víða var mjög kalt á sumardaginn fyrsta. Þá mældist lægsti hiti mánaðarins bæði á mannaðri og sjálfvirkri veðurstöð, á Grímsstöðum á Fjöllum -12,3 stig og -21,4 stig á Brúarjökli.
Meðalhiti í Reykjavík var 5,2 stig og er það 2,3 stigum ofan meðallags. Í Reykjavík deilir mánuðurinn 6. og 7. hlýjasta sæti frá upphafi samfelldra mælinga (1870) með apríl 2004. Á Akureyri var meðalhitinn 4,9 stig og er það 3,3 stigum fyrir ofan meðallag. Þetta er fimmti hlýjasti aprílmánuður þar frá upphafi samfelldra mælinga (1882). Á Höfn í Hornafirði var meðalhiti 5,5 stig og er það 2,7 stigum ofan meðallags. Á Hveravöllum var meðalhitinn -0,5 stig og er það 2,8 stigum ofan meðallags. Þetta er fjórði hlýjasti apríl sem mælst hefur á Hveravöllum.
Aðeins 7 sólarhringar voru þurrir í Reykjavík í apríl. Veðurstofan segir, að þótt úrkoma hafi þannig verið mjög þrálát hafi hún oftast verið lítil hverju sinni, en mældist alls 65 mm. Það er 12% umfram meðallag.
Á Akureyri mældist úrkoma alls 44 mm og er það rúm 50% umfram meðallag. Úrkoma hefur ekki mælst jafn mikil eða meiri í apríl á Akureyri frá 1989. Úrkomudagar á Akureyri voru aðeins 12. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 136 mm, þar af féll nærri þriðjungur á einum degi.
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 151 og er það í meðallagi. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 151 og er það 21 stund umfram meðallag. Fleiri sólskinsstundir mældust í apríl árið 2000. Hlýjustu aprílmánuðir í Reykjavík frá 1870 eru eftirtaldir:
1974 6,3 stig
2003 6,2 stig
1926 6,1 stig
1894 5,7 stig
1955 5,6 stig
2007 5,2 stig
2004 5,2 stig.
1852 var meðalhiti í Reykjavík 6 stig og 5,5 stig 1842.
Hlýjustu aprílmánuðir á Akureyri frá 1882:
1974 6,8 stig
2003 5,6 stig
1926 5,3 stig
1938 5,1 stig
2007 4,9 stig.
1852 var meðalhiti á Akureyri 5,3 stig.