Þrír 13 ára piltar staðnir að verki við innbrot

Lögreglan á Suðurnesjum fékk laust fyrir klukkan 22 í gærkvöldi tilkynningu um að verið væri að brjótast inn í áhaldageymslu Hitaveitu Suðurnesja í Reykjanesbæ. Lögreglan fór þegar á staðinn og stóð þar þrjá 13 ára pilta að verki.

Drengirnir voru færðir á lögreglustöðina og sóttu foreldrar þeirra þá þangað, að sögn lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert