Útivistartími barna breyttur

Lögreglan minnir á að útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær 1. maí og nú mega nú 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00 en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og er þeim m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að mikilvægt sé að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því því felist m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið...

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert