Í yfirlýsingu frá lögmönnum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar segir að þeir muni ekki una sakfellingunni þrátt fyrir að ekki komi til neinnar refsingar. Þeir hafi frá upphafi lýst yfir sakleysi sínu og gerðu því ráð og gerðu því ráð fyrir að verða sýknaðir af öllum liðum ákærunnar á hendur þeim.
Yfirlýsingin er svohljóðandi
Jón Ásgeir og Tryggvi hafa frá upphafi lýst yfir sakleysi sínu og gerðu því ráð fyrir að verða sýknaðir af öllum liðum ákærunnar á hendur þeim.
Hafa ber í huga að ákæruvaldið hefur gefið út ákærur í 58 liðum gagnvart Jóni Ásgeiri og hann hefur verið sakfelldur í einu tilviki. Ákæruliðir á hendur Tryggva voru samtals 36 og hann var sakfelldur í fjórum liðum. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag var 90% sakarkostnaðarins lagður á ríkissjóð í tilviki Jóns Ásgeirs en 80% í tilviki Tryggva. Þessi niðurstaða dómaranna endurspeglar mat þeirra um að langmestur hluti ákærunnar á hendur Jóni Ásgeiri og Tryggva hafi verið tilefnislaus.
Þótt ekki komi til neinnar refsingar vegna skilorðsbindingarinnar sætta Jón Ásgeir og Tryggvi sig ekki við sakfellingu að neinu leyti.