Ölvaður ferðamaður fannst í Tjörninni

Öfurölvi ferðamaður datt í Tjörnina í gærkvöldi
Öfurölvi ferðamaður datt í Tjörnina í gærkvöldi Mynd/JS

Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt í gærkvöldi um að karlmaður væri ofan í Tjörninni. Þegar lögreglan kom á vettvang var maðurinn kominn á þurrt en stóð varla í fæturna sökum ölvunar og gat ekki gert grein fyrir háttalagi sínu vegna áfengisvímunnar.

Hann var færður á lögreglustöð. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvort hann datt í Tjörnina eða stakk sér til sunds. Lögreglan telur að um japanskan ferðamann sé að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert