Á nagladekkjum og talaði í farsíma

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til eigenda og umráðamanna bíla, sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á. Nú sé með öllu óheimilt að aka á slíkum dekkjum en þeir sem það geri megi búast við sekt.

Einn ökumaður var stöðvaður fyrir þessar sakir í Hafnarfirði gær en nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk eins og fram kemur í reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum. Fyrrnefndur ökumaður á því 20 þúsund króna sekt yfir höfði sér en bíll hans var á fjórum nagladekkjum.

Lögreglan segir að sami ökumaður hafi einnig verið að tala í farsíma við aksturinn án þess að notast við handfrjálsan búnað og fyrir það fær hann 5 þúsund króna sekt að auki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert