Engar páskamilljónir frá Vodafone

Vodafone segir að fyrirtækinu hafi í dag borist fjöldi fyrirspurna um tölvupóst í dreifingu, þar sem móttakendum er tilkynnt að þeir hafi unnið stórfé í meintum páskaleik Vodafone í Hollandi. Fyrirtækið segir að um gabb er að ræða.

Segir Vodafone að málið hafi verið kært til lögreglu og hvetur þá sem fá tölvupóst af þessu tagi til að tilkynna það á netfangið he@rls.is.

Segir Vodafone í tilkynningu, að tilraunir til að nota nöfn alþjóðlegra fyrirtækja eins og Vodafone til að ljá netsvikum aukinn trúverðugleika virðist vera að aukast. Hvetji Vodafone fólk til að vera á verði gagnvart slíku og veita ekki upplýsingar af nokkru tagi til þeirra sem stunda þessa iðju.            

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert