Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, hefur kært frávísanir Héraðsdóms Reykjavíkur á tíu liðum Baugsmálsins til Hæstaréttar. Hann hefur einnig kært frávísun héraðsdóms á ákæru á hendur Jóni Gerald Sullenberger. Þetta kom fram í fréttum Útvarpsins.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það af hálfu saksóknara hvort áfrýjað verður ákæruliðum sem héraðsdómur sýknaði Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggva Jónsson af í gær.