Undirbúningur að gerð jarðganga ekki stöðvaður

Vaðlaheiði.
Vaðlaheiði. mbl.is/Loftmyndir ehf.

Stjórn Greiðrar leiðar ehf, hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttaflutnings af blaðamannafundi sem fyrirtækið boðaði til í gær. Segir í tilkynningunni að undirbúningur félagsins að gerð jarðganga hafi ekki verið stöðvaður og að þetta hafi ekki komið fram í máli forsvarsmanna Greiðrar leiðar á fundinum, né í fréttatilkynningu sem send var út í gær.

Fréttatilkynningin er svohljóðandi:

    Alvarlegs misskilnings gætti í fréttaflutningi ljósvakamiðla af fréttamannafundi sem Greið leið boðaði til þann 3. maí sl. Í fréttum af fundinum kom fram að undirbúningur félagsins að gerð jarðganga undir Vaðlaheiði hefði verið stöðvaður. Þetta er rangt og hefur hvorki komið fram í máli forsvarsmanna Greiðrar leiðar né í fréttatilkynningu félagsins dags. 3. maí 2007. Undirbúningur að verkefninu er í gangi - og verður það á meðan félagið er til - þó ljóst sé að framkvæmdir muni dragast frá upphaflegum áætlunum Greiðrar leiðar. Á grundvelli samgönguáætlunar 2007-2010 var Vegagerðinni falið að taka upp samningaviðræður við stjórn Greiðrar leiðar. Einn fundur hefur verið haldinn. Samningsumboð Vegagerðarinnar takmarkast hins vegar við gildandi samgönguáætlun. Stefnt er að öðrum fundi upp úr miðjum maí með það að markmiði að leggja fram sameiginlega tillögu um aukna aðkomu ríkisins að verkefninu.

    Fyrir liggur að leggja verður fyrir Alþingi tillögu til samþykkis um þátt ríkisins í verkefninu umfram þá fjármuni sem markaðir eru verkefninu í gildandi samgönguáætlun.

    Það skal ítrekað að stjórn Greiðrar leiðar væntir þess að samgönguyfirvöld og Alþingi tryggi farsæla afgreiðslu málsins á þingi.

    Að öðru leyti vísast til fréttatilkynningar sem Greið leið lagði fram á fréttamannafundi 3. maí sl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert