Svonefndir stökkskór eru farnir að ryðja sér til rúms hérlendis og hvetur Fjóla Guðjónsdóttir hjá Forvarnahúsi Sjóvár til varúðar við notkun þeirra.
Greint var frá þessu fyrirbæri, sem Bandaríkjamenn kalla „skyrunner", í Morgunblaðinu á föstudag.
Fjóla bendir á að búnaðurinn sé valinn miðað við þyngd notanda og fjöðrunin sé mismunandi. Ástæða sé til að hvetja til aðgæslu og nota ávallt öryggisbúnað eins og hjálm, olnbogahlífar, úlnliðshlífar og hnéhlífar. „Ég myndi ekki mæla með þessu fyrir of unga krakka," segir Fjóla og bendir á að níu til 10 ára krakkar hafi varla burði til að valda svona búnaði. Hún bendir jafnframt á að eingöngu eigi að nota stökkskó á hörðu og flötu yfirborði og varast beri að nota skóna á gangstétt eða í umferð þar sem hætta sé á að rekast á til dæmis ljósastaura eða steina. Heldur ekki í lokuðu rými þar sem lofthæð sé ekki nægileg eða á svölum. Því síður á grasi eða á blautu undirlagi.