Lögreglan í Reykjavík handtók á föstudaginn var glæpagengi frá Austur-Evrópu með mikið af þýfi í fórum sínum. RÚV skýrði frá því að atburðarásin hefði hafist á því að fiskréttaveislu var stolið frá veisluþjónustu á Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Síðan uppgötvaðist að bíl veisluþjónustunnar hafði einnig verið stolið. Bíllinn fannst og lögreglan handtók í kjölfarið samtals sjö þjófa með töluvert magn af þýfi.