Tæplega helmingur hóps Rúmena, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft afskipti af, kom til landsins í gær en hinir hafa dvalið hér á landi í nokkra daga. Lögreglan segir, að fólkið haldi af landi brott í dag og fari héðan sjálfviljugt en hópurinn telur alls 21 einstakling, bæði karla og konur og eitt barn.
Fólkið hafði hvorki atvinnuleyfi né fjármuni til að framfleyta sér hérlendis. Það svaf úti undir beru lofti og reyndi að betla við verslanir í miðborginni.