Enginn eldur reyndist laus í Alþingishúsinu í morgun, en þar fór eldvarnarboði í gang og vaktmaður fann reykjarlykt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór á vettvang og gekk úr skugga um að enginn eldur væri laus. Talið er að reykurinn og lyktin kunni að hafa borist frá þaki hússins þar sem iðnaðarmenn eru að leggja pappa sem er bræddur saman.