Eldsneytisverð hækkar hjá Olís

Verð á eldsneyti hækkaði í dag á bensínstöðvum Olíuverslunar Íslands. Kostar lítri af bensíni nú að jafnaði 121,70 krónur í sjálfsafgreiðslu á stöðvum félagsins og hefur hækkað um tæpar þrjár krónur. Lítri af dísilolíu kostar 121,60 og hefur hækkað um sömu upphæð.

Önnur olíufélög hafa ekki tilkynnt um verðhækkun í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert